Sælar stúlkukindur..

06/02/2009

Jæja.. voða er þetta nú dauð síða hjá okkur Nöldurpíurnar mínar.. ég ákvað nú að setja eitthvað hérna inn þó að ég hafi algerlega ekkert að segja.

Dagarnir mínir eru voða tilbreytingarlausir.. Eina sem ég geri er að læra, elda, fara í höfuðbeina og spjaldhryggsmeðferðir einu sinni í viku og reyna að fara út að labba þegar ég nenni.. ;)

Bræðurnir eru allir í Orlando núna að sletta úr klaufunum, þeir fóru á mánudaginn og koma á sunnudaginn, þess vegna er ég bara búin að vera hérna í sveitinni alla vikuna, langaði ekki að láta múttu og Mola vera ein.. og það er búið að vera bara ótrúlega notalegt verð ég að segja.. :)

Ég og Alda Marín fórum á Rústað í Borgarleikhúsinu um daginn, mér fannst það alveg fínt og það var ekki jafn ógeðslegt og ég átti von á, miða við allar hræðslusögurnar sem maður var búinn að heyra.. En æi ég veit það ekki, ég er meira til í að fara á leikrit sem ég get hlegið af eða er með góðum lögum frekar en svona drama og þunglamalegt en þetta var alveg ágætisafþreying og reyndar þrusuvel leikið hjá þeim.

Og að lokum spyr ég .. hverjar ætla á þorrablót?!?!?!

Knús og kram..

Sigurborg Sif

(þessi færsla komst mjög nálægt því að vera eins og dagbókarskrif) ;)


Tilkynningar

15/01/2009

Þetta er helst í fréttum hjá nöldrinu:

Harpa er að fara í afmælisheimsókn til Köben =) kreppa hvað

Birna er að fara í skíðaferð til …….Assssspppkureyrar í fyrramálið kl. 10!!!

yfir og út….


….

02/01/2009

Gleðilegt nýtt ár allir saman….. :)

 

f.h. nöldurgrúppunnar ;)


Jæjaaaa ein komin, þrjár eftir!!

15/12/2008

Já hún Ösp okkar datt á klakann í dag, þó ég hafi nú ekki staðfest það með eigin augum. Hef bara áreiðanlegar heimildir fyrir því ;) Svo koma tvær á laugardaginn, nánar tiltekið Anna og Unnur. Og svo kemur hún Írena okkar á þorláksmessu… just in time for SKÖTU :D Bara svona rétt að minna ykkur á það ef þið skylduð eitthvað vera að gleyma að koma heim ;) Hlakka rosa mikið til að sjá ykkur allar…. og ykkur hinar líka auðvitað! Átti samt langþrátt dinner date með Eddu minni áðan og Ragnar fékk að vera þriðja hjólið :P Prófmyglan fer að detta af manni þ.e.a.s. á fimmtudaginn en þá er það bara vinna vinna vinna… við Björk vorum búnar að komast að því að ég ætla að vera þarna gellan í auglýsingunni sem er að “glúgga” baunirnar á aðfangadagskveld. En hvað er planið?!!? Ball!?!? Hittingur?!!?

                         Kveðja, jóli.


all the girls standing in the line for the bathroom…

03/12/2008

ókei 2 spurningar sem ég vil fá svar við…

pb11a. hvenær hafði Michael Scofield tíma og pjenge til að fara í extensive tattoo removal?

OG

wentworth-miller-prison_l

b. hvenær straukst hann við greinar ljóta trésins og varð feitur??

 

verðlaun fyrir þann sem svarar mér

bleller

B-Nasty 


Schnappi das kleine krokodil

25/11/2008

legendary


Smá húmor í tilefni flöskudagsins…

20/11/2008

Þar sem ég horfi ekki á Prison þættina þá skildi ég ekki bloggið fyrir neðan mig nema bara fréttina í samhenginu.. en þetta fékk ég sent í pósti og mér fannst þetta nú bara eiga vel við..

 

 

Einn í takt við tíðarandann

 

Íslenskur lýtalæknir var staddur á ráðstefnu erlendis með kollegum sínum. Eftir langa og stranga dagskrá ráðstefnunnar héldu ráðstefnugestir á öldurhús og gerðu sér glaðan dag. Eftir því sem líða fór á kvöldið og nóttina þynntist hópurinn og lokst sátu einungis þeir þaulsetnustu eftir.
Þegar þeir höfðu ekkert meira að tala um fóru þeir að segja hetjusögur af þeim afrekum sem þeir höfðu unnið á skurðborðinu.

Einn Bretinn sagði sögu af því að hann ásamt teymi sínu hafi tekið á móti sjúklingi sem missti hendina í prentsmiðju. Á sjúklinginn græddu þeir nýjan handlegg, lófa og fingur og eftir að hann kom til starfa aftur varð hann svo góður og öflugur verkmaður að hann vann á við 4 og því fóru þrír á atvinnuleysisskrá sem áður störfuðu hjá fyrirtækinu.

Rússnenskum lækni fannst ekki mikið til þess koma og sagði frá manni sem lent hafði inní kjarnaofni. Þeir fengu ekkert annað en hárið inná skurðborðið til sín, græddu á það höfuð, búk og útlimi. Þessi maður varð svo góður verkmaður þegar hann snéri aftur til starfa að hægt var að segja upp heilli vakt í kjarnorkuverinu, 9 manns fóru á atvinnuleysisskrá.

Íslenski læknirinn sagði iss við þessari sögu. “Ég var einu sinni staddur niðrí Austurstræti og fann rosalega vonda prumpulykt. Ég veiddi hana í poka og brunaði með hana uppá Borgarspítala og skellti henni á skurðborðið. Við græddum á þetta búk, höfuð, útlimi og enduðum með að setja krullur ofaná þetta allt saman. Úr þessu varð Davíð Oddsson og hann er á góðri leið með að setja alla þjóðina á atvinnuleysisskrá”. 

 

OG svo ætlum ég og Alda Marín að skella okkur á Sigur Rós tónleika á sunnudaginn.. ég get þannig séð ekki beðið.. er bara með sigur rós á repeat að reyna að læra hérna, gengur frekar illa því ég hlakka svo til!!! :D

 

 

Knús og kossar til ykkar allra.. ;*


Prison break hvað sko

18/11/2008

Hahaha

Skil ekki hvað Scofield og co eru að flækja málin þarna í Prison Break!!!

Veröld/Fólk | Morgunblaðið | 17.11.2008 | 05:30

Fangi slapp í pósti

Þýska lögreglan hefur hafið viðamikla leit að fanga sem slapp með því að senda sjálfan sig í pósti úr fangelsi nálægt Düsseldorf. Fanginn tróð sér ofan í stóran pappakassa sem fluttur var með hraðpósti ásamt varningi sem fangar höfðu framleitt fyrir þýskar verslanir.

Fanginn er 42 ára gamall Tyrki og afplánaði sjö ára fangelsisdóm fyrir fíkniefnasmygl.



Muni þið eftir þessu.. ;)

12/11/2008

Afmælisvísur

Unnur:
Nú er Pinky orðin átján! Í englum út er klínd
Eftir áramót til Guatemala alveg verðut týnd
Brosið þá af andlitinu í örskot þurrkast af
Svo upphefst það að nýju því djókið guð oss gaf

Á bleiku skýi sveif hún svo sætt um Heklukot
Söng allt fyrir krakkana og kjaftar alla í þrot
Ef vogarðu þér að tala þá villt hún óðar tér
“viltu hætta að taka svona fram í fyrir mér!”

Óskaplega myndarleg með ógnar linsufíkn
Af samskiptum við Thailendinga sjálfsagt er hún sýkn
saka, milli þeirra ríkir samkomulagsþögn
samt vitum við að Unnur alltaf brýtur hana ögn

Hún brussast við að baka og brasa í spíkat fer og splitt
Því spúsan ekki um stundarsakir fær að gera hitt
í EmmEll engir strákar ennþá orði skjóta inn
Kryddið gamla í körfu tognar! kæri vinur minn

Ösp
Á Kaldbak skoppar Ölli um og skekur Nörrann sinn
Skelfilegt! þegar drósin er að gefa druslunni inn
Úr EffEssU með drama um daginn dimmiteringu tók
Drengirnir á laufblöðum og dömur ekki í brók

Já, hún er eins og Eva enda ævagömul sál
Útskrifaðist brjóstgóð og kjarngott hennar mál
Eldar sjávarrétti sem ilma upp í mér
Öðru hvoru blasir fiskifésið frítt við þér

Við vitum að með málsnilli einn mildan veðurdag
Mun Ölli láta okkur fara fóstbræðra- í lag
Fastar en á fótunum hún færir öll sín rök
Fyndin og á rökræðunum hefur glæsitök

Nú er hún orðin Gaflari og í Grafarvoginum
Gaggar hún í eyrun á blíðum barnasálum
Eins gott að á Evuklæðum ekki sjáist þar
Alveg myndi líða yfir hinar fóstrurnar

Anna
Nú er röðin komin að Engifer A.Ha, A.Ha, A.Ha
Er alltaf að detta á fylleríi og ekki meira um “þa”
Og þó! á hausinn hefur dottið, heldur skánaði við það
Hrapaði í stiga, á nagla skarst og nú er það komið á blað

Hundar prósent Pólýester prýðir hennar skrokk
Prúðlega felur marbletti, hún met í þeim á nokk
Syngur eins og engill fyrir Sigga Gísla sinn
Seinna meir á sviðið röddin fleytir henni inn

Það er Styrkur að henni Önnu er stormur móti blæs
Stundar æfingar af krafti og verslar ekki í Splæs
Nema kannski brjóstarhaldara í númeri hundrað og þrjú
Og náttúrulega skálastærðin reyndist vera Q

Á Árbakka hún sefur svo sætt og vært og rótt
Svefninn henni gefur eftir böll og bjórþamb rótt
Aðsetur á Slysó hún á sér söngfuglinn
Í ellefu ellefu öðru hverju óstyrk læðist inn

Frá Helluvinahópnum
Þó ákveðnar þið séuð þá sérhver hérna veit
Að sameiginlega eigið það eitt að vera úr sveit
Að lifa fyrir þjóðhátíð, að liggja á bloggsíðum
Að líða útaf af drykkju í öllum partíum

Já, við kunnum ekki að telja það hver maður nú sér
Komið er að afmæli í annað skiptið hér
Ef bollan reynist drekkandi þá bara þegjum við
Undir borðið lendum með ykkur að sannra vina sið

En.. fyrst ætlum við að segja áður en fjarar vitið út
Fylleríið algert og allir drekka af stút
Að þið eruð bestu vinkonur þó bollan reynist súr
Og bara nokkuð skapgóðar ef þið eruð ekki á túr

Til hamingju með afmælin! Þið eigið kannski von
Um aftrek seinna í lífinu, við munum lon og don
Styðja ykkur með kærleik og krafti grínarans
Koma ykkur af stolti og með stærileik til manns

Minningum að safna í sjóð er draumurinn
Og seinna þegar höldum á ellislóðir inn
Við geymum innst í hjarta gleði, vináttu og sorg
Þá gæfu að eiga ykkur…
                                       Írena og Sigurborg

 

 

Og síðan eru liðin 4 ár.. :)

Lovejúall.. ;*


Híhí

12/11/2008