Sælar stúlkukindur..

Jæja.. voða er þetta nú dauð síða hjá okkur Nöldurpíurnar mínar.. ég ákvað nú að setja eitthvað hérna inn þó að ég hafi algerlega ekkert að segja.

Dagarnir mínir eru voða tilbreytingarlausir.. Eina sem ég geri er að læra, elda, fara í höfuðbeina og spjaldhryggsmeðferðir einu sinni í viku og reyna að fara út að labba þegar ég nenni.. ;)

Bræðurnir eru allir í Orlando núna að sletta úr klaufunum, þeir fóru á mánudaginn og koma á sunnudaginn, þess vegna er ég bara búin að vera hérna í sveitinni alla vikuna, langaði ekki að láta múttu og Mola vera ein.. og það er búið að vera bara ótrúlega notalegt verð ég að segja.. :)

Ég og Alda Marín fórum á Rústað í Borgarleikhúsinu um daginn, mér fannst það alveg fínt og það var ekki jafn ógeðslegt og ég átti von á, miða við allar hræðslusögurnar sem maður var búinn að heyra.. En æi ég veit það ekki, ég er meira til í að fara á leikrit sem ég get hlegið af eða er með góðum lögum frekar en svona drama og þunglamalegt en þetta var alveg ágætisafþreying og reyndar þrusuvel leikið hjá þeim.

Og að lokum spyr ég .. hverjar ætla á þorrablót?!?!?!

Knús og kram..

Sigurborg Sif

(þessi færsla komst mjög nálægt því að vera eins og dagbókarskrif) ;)

9 Responses to Sælar stúlkukindur..

  1. Tinna Ösp says:

    O gaman að sjá eh nýtt hérna, en held að það séu bara flestir með frekar eins daga alltaf eða amk er ég í þeim hópi. Annars ætla ég á þorrablót um næstu helgi en bara í sveitinni minni ;) Góða skemmtun á hellublóti

  2. UnnurLilja says:

    jíha! loksins líf!

    þú færð tuttugu prik fyrir þetta sigurborg!

    knúsknúsknús

  3. Edda says:

    Ohh frábært framtak hjá þér Sigurborg mín!!

    Ég kemst því miður ekki á þorrablót þar sem ég er að fara í próf fljótlega eftir helgina 14-15.feb.

    En ég er til í djamm helgina 22.-23.feb takk fyrir:)

    Annars fara dagarnir mínir núna aðallega í það að skoða heilasýni. Ég er alveg að verða búin að ná hvernig þetta lítur út,þannig að ég myndi segja að ég sé langt á leið með að verða eins og dr.Derek Shephard, jessöríbob;)

    Annars bara gott að fá update frá þér Sigurborg, gott að vita að það er allt gott að frétta.

    Ég ætlast svo bara til þess að sjá ykkur á djamminu 22.-23 feb…

    kv. Edda (bara 9 dagar í frelsið)

  4. Ösp says:

    vííí en gaman að sjá líf hér:)
    ég mæti á þorró:D hlakka til!

  5. Harpa says:

    Þó það þurfi nú ekki að spurja mig að því hvort ég mæti tilkynni ég það samt hér með!! Læt mig alls ekki vanta á þennan viðburð, skyldumæting ;)

  6. HJÖRDÍS says:

    Gaman að sjá nýja færslu!! en þrátt fyrir fá orð hér þá er samt greinilegt að margar kíkja reglulega á síðuna, það er gott ;) míns ætlar á blót, er á fullu þessa dagana að skvísa upp gellur fyrir blótin ;)

  7. Björkin says:

    vúhú var bara að sjá nýja færslu…mjööög ánægð með þetta framtak hjá þér, Sigurborg;)
    Ég læt mig AÐ SJÁLFSÖGÐU ekki vanta á blót!!! Hlakka meeega mikið til:D
    Annars er mar nú alltaf til í djammijamm;)

  8. írena says:

    Frábært framtak! :) Gaman að sjá að allt er gott að frétta! Verst að komast ekki á blót… en ég er að fara til Önnu 19.feb og ég hlakka rosarosa mikið til!! :D
    knús á ykkur allar

  9. Anna says:

    úje komin ný færsla!!! ánægð með þig Sigurborg:)

    Þetta er alveg skelfilegt hvað þessi síða er orðin líflaus…

    Hlakka rosa rosa til að fá þig Írena mín :)

    Sakna ykkar elskurnar..

    Knús frá Önnu sem er að fara á Kings of Leon tónleika í kvöld vei vei vei :)

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.